Fjöl­skylduráð

Fundur nr. 8

Kjörtímabilið 2022—2026

14. mars 2023

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 12:00
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð

Fundur var haldinn í fjölskylduráði, þriðjudaginn 14. mars 2023 í Miklagarði kl. 12:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Grunn­skóli

    Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla, bréf.

    Lagt til að skólastjórar sendi einn fulltrúa og einn frá sveitarsjórn.  Lagt er til að skólastjóri og einn úr fræðslunefnd sæki fundinn.  Vísað til sveitastjórnar að tilnefna fulltrúa úr hópi sveitastjóra, fjármálastjóra og sveitarstjórn.

  • Málefni aldr­aðra


    a)Hjólastólabíll/ aksturþjónusta - Hafdís    
    Hafdís Bára iðjuþjálfi kynnir m.a. fyrirkomulag í öðrum sveitafélögum. Hafdísi falið að vinna upplýsingaöflun áfram og leggja fyrir næsta fund. 
    b)Heilsuefling eldri borgara – Áætlunarferð í sund – lagt til að Þórhildur vinni málið áfram.  
    c)Öldungaráð til upplýsinga. Verið að vinna málið áfram.

  • Örygg­ismál gang­andi vegfar­enda/barna


    a.Gangbrautarmál- lýsing það vantar lýsingu við gagnbrautir. Vantar gangbrautir við flestar götur í sveitafélagsinu. Og færa gangbrautir frá hornum. 
    b.Gatnamót – lagning bíla á götum og gangstéttur.   Vantar skilti hjá td. íþróttahúsinu 
     
    Lagt til að sveitastjórn láti fjölga gangbrautum til að auka öryggi gangandi vegfarenda í umferðinni , setji spegla á hættulegum gatnamótum og láti mála kanststeina þar sem ekki má leggja. T.d. við gatnamót.



  • Sund­lauga­aropnun

    ​Lagt til við sveitarstjórn að annað hvort færa opnunartíma fyrr 1x2 í viku eða bæta við opnunina þannig að fólk sem vill fara fyrripartinn í sund geti það og skoða að lengja opnunartíma um helgar. Sérstaklega þegar kemur að vormánuðum og haustmánuðum.

Fundi slitið kl 13:25.