Á sveitarstjórnarfundi 21. mars s.l. voru samþykktar reglur menningarsjóðs Vopnafjarðarhrepps en sjóðurinn er á vegum menningar- og atvinnumálanefndar.
Sjóðurinn er ætlaður til að efla og styðja við verkefni á sviði menningar-, lista- og ferðamála á Vopnafirði og skulu þau einkennast af metnaði, fjölbreytni, samvinnu og virkri þátttöku íbúa og gesta. Einnig þurfa þau að endurspegla aukinn stuðning við grasrót í menningarlífi og ferðamálum og stuðla að frumkvæði einstaklinga/fyrirtækja með því að styðja við bakið á hvers kyns sköpunarstarfi.
Í reglum sjóðsins segir að úthluta skuli styrkjum tvisvar sinnum á ári; 1. apríl og 1. október. Þar sem knappur tími var frá samþykkt sveitarstjórnar og úthlutunartímans 1. apríl í ár, er dagsetningu fyrstu úthlutunar hliðrað til 15. maí n.k..
Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð.
Meðfylgjandi eru reglur sjóðsins sem umsækjendur eru hvattir til að kynna sér.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök.
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2024.
Sótt er um á meðfylgjandi eyðublaði og skal umsókn skilað inn rafrænt til Írisar Eddu á irisj@vfh.is.
Reglur menningarsjóðs#reglur-menningarsjods
Eyðublað#eydublad
Eyðublað - Menningarsjóður | doc / 48 kb |