Golfvöllur Vopnafjarðar, Skálavöllur, er 9 holu völlur, sem legu sinnar vegna hefur ákveðna sérstöðu meðal golfvalla á Íslandi. Hæðótt landslagið, í sumum tilfellum skáskorið getur verið ögrandi viðureignar fyrir leikmenn og þrátt fyrir smæð skortir fjölbreytnina ekki. Fagurt umhverfi og útsýni, með myndarleg Krossavíkurfjöllin handan fjarðarins, eykur enn á ánægju íþróttarinnar.
Golfklúbbur Vopnafjarðar rekur völlinn. Nú skartar völlurinn frábærum golfskála þar sem hvíla má lúin bein, komast á snyrtingar eða borða nestið.
Njótið leiksins.
Verið velkomin á Skálavöll.
Rekstaraðilar: Golfklúbbur Vopnafjarðar
Heimilisfang: Skálar
Sími: 894 4521
Netfang: govopn@gmail.com
Hamrahlíð 15, 690 Vopnafjörður, Iceland
Sími: 473 1300
Opið: Mán-Fös 8:00-17:00 GMT
Smelltu hér til að sjá kort af staðnum