Hárgreiðslustofan Sóló hefur verið starfrækt við góðan orðstýr um árabil hér í Vopnafirði. Árið 2012 bjó eigandinn, Guðrún Anna, um starfsemi stofunnar hér við aðalgötu þorpsins, í gömlu pósthúsi staðarins, á smekklegan og skemmtilegan hátt. T.d. hefur hún útbúið leikhorn fyrir börnin í gömlu símaklefunum.
Guðrún Anna er dugleg við að sækja sér námskeið í öllu því nýjasta sem hártískan hefur uppá að bjóða.
Kíktu endilega við eða hafðu samband.
Alla virka daga frá kl. 10:00 - 16:00.
Hársnyrtir: Guðrún Anna Guðnadóttir
Heimilisfang: Kolbeinsgötu 8
Sími: + 473-1221