Vopnfirðingasaga er ein af bókum Íslendingasagnanna, hluti af einum mikilvægasta menningararfi okkar Íslendinga, bókmenntaarfinum. Vopnfirðingasaga er talin rituð á fyrri hluta 13. aldar (1225-1250) og gerist hugsanlega á tímabilinu 960-990. Söguslóðir eru í Vopnafirði og í raun á mjög afmörkuðu svæði að mestu í austanverðum Hofsárdal, frá Böðvarsdal við sjó og inn til dala og heiða. Auðvelt er í dag að komast að og/eða sjá flesta staði sem getið er um í sögunni. Vopnfirðingasaga er átakasaga tveggja höfðingjaætta vegna ágirndar, græðgi og valdabaráttu en líka vegna vináttu og fjölbreyttrar manna- og mannlífslýsinga sem einkenna söguna.
Með fornleifarannsóknum 2006 fannst skálatóft frá tímum hinna fornu Hofverja rétt við kirkjuna á Hofi.
Ein aðalpersóna sögunnar Helgi Þorgilsson, sem síðar fékk viðurnefnið Brodd-Helgi var alinn upp á Hofi og síðar bóndi og goðorðsmaður á Hofi. Ungur drengur batt Helgi mannbrodd á enni griðungs þannig að honum gengi betur í baráttu við önnur naut og kemur þaðan viðurnefnið. Á unglingsárum blandar Brodd-Helgi sér í deilur bændanna Svarts og Skíða og fær Svart dæmdan sekan. Svartur flýr upp í Smjörvatnsheiði og Brodd-Helgi sækir þar að honum vígalegur mjög með skjöld og steinhellu sem hann girti í brók sína neðan við skjöldinn. Felldi hann Svart og varð af því frægur.
Frá barnæsku var mikið vinfengi með Brodd-Helga og Geiti í Krossavík. Brodd-Helgi átti systur Geitis og sonur þeirra Bjarni Brodd-Helgason var fóstraður upp í Krossavík. En afskipti þeirra vina af örlögum og eigum Hrafns Austmanns sem hafði vetursetu í Krossavík og hvarf þegar setið var að vetrarblóti í Haga varð til þess að vinátta þeirra kólnaði. Brodd-Helgi skildi við Höllu systur Geitis og kvæntist Þorgerður silfru úr Fljótsdal. Deilumál þeirra fyrrum vinanna magnast og verður að f ullum fjandskap.
Þingmenn þeirra Geitis og Brodd-Helga lenda í deilum og allt verður til að slíta vinfengi þeirra. Jókst ójafnaður Brodd-Helga svo að bændum þótti nóg komið. Á vorþingi í Sunnudal er talið að Geitir hafi fellt Brodd-Helga. Fyrir áeggjan Þorgerðar stjúpu sinnar vegur Bjarni Geiti fóstra sinn og frænda En sagan var ekki öll. Þorkell sonur Geitis tók við goðorði föður síns en Bjarni Brodd-Helgason við goðorði að Hofi. Höfðu þeir alist upp saman í Krossavík og voru systkinasynir.
Bjarni reyndi að sættast við Þorkell en tókst ekki og Þorkatli mistókst í þrígang að hefna. Lokaátökin urðu svo á orustuvelli við Eyvindarstaði. Bjarni fór með sigur af hólmi, sættist hann síðar við Þorkell og bauð honum að Hofi til dvalar. Þriggja áratuga hefndum var þar með lokið.